Heilsudagar

ALLIR VELKOMNIR Á HEILSUSTOFNUN NLFÍ

Heilsustofnun NLFÍ býður gestum að koma til dvalar til lengri eða skemmri tíma til heilsueflingar. Til að koma í heilsueflingu er ekki þörf á beiðni frá lækni .

Það er margsannað að forvarnir og heilsuefling eru mikilvæg fyrir andlega og líkamlega vellíðan. Í starfi Heilsustofnunar NLFÍ er lögð áhersla á að dvalargestir nái sem bestri líðan bæði á líkama og sál. Fyrir þá sem vilja enn frekari þjónustu er heilsubúð, snyrtistofa og hárgreiðslustofa innan seilingar. Verðin hér að neðan eru fyrir einn í eina nótt.

Heilsupakki 1
Innifalið: Gisting í eina nótt, fullt fæði, aðgangur að baðhúsi, tækjasal, slökunartímum og bókasafni. Ef dvalið er í 7 nætur eða lengur bætist við pakkann viðtal hjá lækni.

Einbýli Tvíbýli
Herbergi með baðherbergi, síma og sjónvarpi
11.800 9.600
Fullbúin 52 fm. íbúð*
16.000 13.800

Heilsupakki 2
Heilsudvöl sem inniheldur upptalninguna í heilsupakka 1 auk skipulagðrar göngu undir stjórn íþróttakennara og einnar meðferðar að eigin vali: partanudd, leir, heilsubað eða nálasungur alla virka daga. ef dvalið er í 7 nætur eða lengur bætist við pakkann viðtal hjá lækni.

Einbýli Tvíbýli
Herbergi með baðherbergi, síma og sjónvarpi
16.500 14.200
Fullbúin 52 fm. íbúð*
19.100 18.800

Heilsupakki 3
Heilsuefling þar sem æskilegur dvalartími er a.m.k. 5 dagar. Innifalið er

upptalningin í heilsupakka 1, viðtal við lækni og meðferð samkvæmt læknisráði.

Einbýli Tvíbýli
Herbergi með baðherbergi, síma og sjónvarpi
23.400 21.100
Fullbúin 52 fm. íbúð*
27.600 23.300

*Lýsing á íbúð: svefnherbergi, stofa og eldhús útbúið öllum helstu tækjum, baðherbergi með sturtu. Vinnuaðstaða í staða í stofu með síma, tölvu, prentara og nettengingu. Í stofu er plasmaskjár, video og DVD tæki.

ATH:

  • Allir sem bóka heilsupakka fara í viðtal hjá hjúkrunarfræðingi á fyrsta degi.
  • Staðfesta þarf pöntun með greiðslukorti
  • Afpanta skal dvöl með a.m.k. tveggja daga fyrirvara, að öðrum kosti þarf að greiða afbókunargjald sem samsvarar verðgildi einnar nætur.
  • Heilsustofnun er reyklaus stofnun. Reykingar og áfengisneysla eru hvorki leyfðar inn á stofnunini eða á lóð hennar. Ef komið er á Heilsustofnun undir áhrifum áfengis þá er viðkomandi vísað í burtu.
  • Öll verð eru í íslenskum krónum á mann fyrir eina nótt og gilda árið 2009.